Hundasport

Við æfum vinnuhunda og kennum hlýðninámskeið. Við hófum starfsemi sumarið 2008 undir nafninu vinnuhundar.net en haustið 2009 tókum við upp nafnið Hundasport þegar starfsemin jókst.

Helgarnámskeið

Sheffer hundur með uppeldissyni

Við bjóðum helgarnámskeið fyrir hunda sem vilja læra margt á stuttum tíma.
Á helgarnámskeiði – sem eru byggð á hundaþjálfun okkar – lærir hundurinn þinn eftirfarandi:

Ganga í taum, koma inn við hæl, ganga við hæl, innkall, leik, sitja, liggja, og bíða.

Helgarnámskeiðin voru í fyrstu bara boðin úti á landi. Við erum alltaf til í að skreppa út á land fyrir smærri hópa.

Á einu helgarnámskeiði nærðu að læra um 70% af því efni sem kennt er á klassísku helgarnámskeiði. Einnig er í boði að fara á “Helgarnámskeið framhald”.  Á framhalds námskeiði er styrkt það sem áður var lært og bætt við ýmsum skemmtilegum hundakúnstum.

Hundaþjálfun

Við æfum ýmsa hundaþjálfun vikulega í jaðri höfuðborgarsvæðisins. Við æfum sporhunda, hundafimi,  víðavangsleit, hverfaleit, efnaleit og snjóleit þegar hægt er.

 Það er einstök tilfinning að vinna með hundi sínum í einhverju sem ykkur báðum finnst skemmtilegt. Hvað er skemmtilegra en heilbrigð útivist í góðum félagsskap?

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>